Siguroddur og Tign tóku gullið
Keppni í fimmgangi F1 Vesturlandsdeildarinnar fór fram í Faxaborg að kvöldi 24. mars.
24 keppendur voru skráðir til leiks og gekk mótið í alla staði vel. Mótið er bæði liðakeppni og einstaklingskeppni. Siguroddur Pétursson og Tign frá Hrauni stóðu uppi sem sigurvegarar með 6,60 í einkunn. Reynir Örn Pálmason og Lína frá Miklaholtshelli varð í öðru sæti og í þriðja sæti varð Þorgeir Ólafsson og Platon frá Áskoti.
Niðurstöður úr A úrslitum
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Siguroddur Pétursson Tign frá Hrauni 6,60
2 Reynir Örn Pálmason Lína frá Miklaholtshelli 6,43
3 Þorgeir Ólafsson Platon frá Áskoti 5,95
4 Benedikt Þór Kristjánsson Tvenna frá Vogatungu 5,86
5 Þorgils Kári Sigurðsson Nasi frá Syðra-Velli 5,76
Stigahæsta lið kvöldsins var lið Bergs með 48 stig en keppendur voru Þorgils Kári Sigurðsson sem endaði í fimmta sæti, Jón Bjarni Þorvarðarson og Þórdís Fjeldsteð.
Staðan í liðakeppninni eftir þrjár keppnisgreinar:
- Hergill/Exporthestar 131,5 stig
- Hestaland 129 stig
- Berg 117,5 stig
- Mýrdalur 101,5 stig
- Kidka/Söðulsholt/Hestakofinn 95 stig
- Skáney 77 stig
- Avents viðburðaþjónusta 32,5 stig.
Næsta mót í deildinni verður haldið í Faxaborg 14. apríl og er þá keppt í tölti T1 og skeiði í gegn um höllina. Því eru ennþá fjölmörg stig í pottinum þannig að allt getur gerst.
Reynir Örn Pálmason leiðir einstaklingskeppnina með 25 stigum en í öðru og þriðja sæti eru þeir Siguroddur Pétursson og Þorgeir Ólafsson með 20 stig. Þar á eftir koma Sindri Sigurðsson með 17 stig og Þorgils Kári Sigurðsson með 16 stig.
Niðurstöður úr fimmgangnum
B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Sindri Sigurðsson Greipur frá Haukadal 2 6,55
7 Glódís Líf Gunnarsdóttir Hallsteinn frá Þjóðólfshaga 1 6,21
8 Guðmar Freyr Magnússon Spölur frá Efri-Þverá 5,57
9 Guðný Margrét Siguroddsdóttir Gleði frá Miklagarði 5,36
10 Jón Bjarni Þorvarðarson Hrollur frá Bergi 5,26
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Siguroddur Pétursson Tign frá Hrauni 6,37
2 Benedikt Þór Kristjánsson Tvenna frá Vogatungu 6,23
3-4 Reynir Örn Pálmason Lína frá Miklaholtshelli 6,07
3-4 Þorgils Kári Sigurðsson Nasi frá Syðra-Velli 6,07
5 Þorgeir Ólafsson Platon frá Áskoti 6,03
6 Jón Bjarni Þorvarðarson Hrollur frá Bergi 6,03
7 Sindri Sigurðsson Greipur frá Haukadal 2 5,97
8 Glódís Líf Gunnarsdóttir Hallsteinn frá Þjóðólfshaga 1 5,90
9 Guðmar Freyr Magnússon Spölur frá Efri-Þverá 5,80
10 Guðný Margrét Siguroddsdóttir Gleði frá Miklagarði 5,67
11 Jóhann Magnússon Frár frá Bessastöðum 5,63
12-13 Hanna Sofia Hallin Rösk frá Runnum 5,37
12-13 Lárus Ástmar Hannesson Skuggi frá Hríshóli 1 5,37
14 Haukur Bjarnason Losti frá Skáney 5,30
15 Ísólfur Ólafsson Snót frá Aðalbóli 1 5,23
16 Þórdís Fjeldsteð Grímur frá Ölvaldsstöðum IV 5,20
17 Inga Dís Víkingsdóttir Greifi frá Söðulsholti 5,10
18 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Blakkur frá Skáney 5,07
19 Guðmar Þór Pétursson Vindbylur frá Staðarhúsum 5,00
20 Herdís Lilja Björnsdóttir Garún frá Kambi 4,87
21-22 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Náttfari frá Enni 4,83
21-22 Reynir Aðalsteinsson Skuggi frá Skipaskaga 4,83
23 Tinna Rut Jónsdóttir Melrós frá Aðalbóli 4,30
24 Iðunn Svansdóttir Myrkvi frá Hríshóli 1 4,27
Siguroddur og Tign tóku gullið
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Þórunn bar sigur úr býtum
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Öskufljót og flink skeiðhross í 1.deild Hringdu