Sigursteinn Landsmótsmeistari í tölti í annað sinn
Sigursteinn Sumarliðason vann það afrek að verða Landsmótsmeistari í tölti í annað sinn í röð á LM2012 í Reykjavík.
Úrslitin fóru fram í fögru veðri. Kvöldsólin logaði í gljáandi feldi heitra og sveittra hrossanna. Hægur andvari lék um menn og hesta. Íslenskt sumarkvöld eins og þau gerast best.
Úrslitin voru mjög spennandi. Hinrik Bragason á Smyrli frá Hrísum var efstur eftir forkeppnina og mjög sigurstranglegur; með nýjan og ferskan hest, vel þjálfaðan og góðan. Sigurbjörn Bárðarson, sem vann sig upp úr B úrslitum fór þó best af stað eftir hæga töltið á Jarli frá Miðfossum, fékk níur og níufimmur í röðum.
Jarl er hins vegar mun síðri á hraðabreytingunum — og einkum þó á yfirferðinni. Þar er hins vegar Alfa í essinu sínu. Smyrill var óstöðugur á yfirferðinni, enda lætin í áhorfendum og hávaðinn í tónlistinni ekki beinlínis hestvænn. Var greinilegt að ósköpin fóru ekki vel í öll hrossin, til dæmis þá Smyril og Jarl, sem sprungu upp af greiða töltinu fyrir vikið.
Sigursteinn og Alfa notuðu fagnaðarlætin og desibilin hins vegar sem vind í seglin og fóru mikinn á takthreinu og feikna hröðu tölti, sem á endanum reið baggamuninn. Díva frá Álfhólum og Sara Ástþórsdóttir fengu þó langhæst fyrir greiða töltið, níu komma þrjá eða níu komma fimm. Man ekki hvort var, en það var alla vega farið að glitta í tíuna.
Það var síðan engin annar en Jóhann Skúlason, margfaldur heimsmeistari í tölti sem afhenti LM töltbikarinn og var það vel við hæfi og hátíðlegt. Skemmtileg og vel heppnuð úrslit á skemmtilegu og vel heppnuðu Landsmóti. Þess má að lokum geta að Alfa er ólétt síðan fyrr í júní. Faðirinn er Spuni frá Vesturkoti. Nema hvað!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH