Sigursteinn og Viðar sigruðu skeiðkeppnir – video
Skeiðmót Meistaradeildar í hestaíþróttum var haldið í blíðskapar veðri á félagssvæði Sörla í Hafnarfirði í gær. Keppt var í 150m skeiði og gæðingaskeiði og var það Sigursteinn Sumarliðason, Spónn.is, á Arnari frá Blesastöðum 2a, sem bar sigur úr býtum í 150m skeiði og Viðar Ingólfsson, Hrímnir, á Má frá Feti sem sigraði gæðingaskeiðið.
Eins og áður sagði var það Sigursteinn Sumarliðason, Spónn.is, sem sigraði 150m skeiðið á tímanum 16,69 en besta tíma dagsins 15,11 átti Sigurður V. Matthíasson, Málning/Ganghestar, á Zeldu frá Sörlatungu og hafnaði hann í öðru sæti í úrslitunum. Þriðji varð Teitur Árnason, Árbakki/Norður-Götur, á Veigari frá Varmalæk.
Í gæðingaskeiði stóð Viðar Ingólfsson, Hrímnir, efstur eftir fyrri umferð með einkunnina 8,00 en þeir félagar gerðu enn betur í seinni umferð og hlutu þar einkunnia 8,17 og 8,08 í aðaleinkunn eftir báðar umferðir. Í öðru sæti varð Sigurður Sigurðarson, Lýsi, á Freyði frá Hafsteinsstöðum með einkunnina 7,92 og þriðji varð Sigurbjörn Bárðarson, Lýsi, á Flosa frá Keldudal með einkunnina 7,88.
Í liðakeppninni trónir lið Lýsis enn á toppnum með 263,5 stig og í öðru sæti er Árbakki/Norður-Götur með 219,5 stig. Í þriðja sæti er síðan lið Hrímnis með 198 stig en næstu sæti þar á eftir eru þétt skipuð því einungis 2,5 stig skilja að þriðja og fimmta sætið.
Í einstaklingskeppninni hefur Sigurður Sigurðarson, Lýsi, aukið forskot sitt á næsta keppanda sem er Sigurbjörn Bárðarson, Lýsi, með 37,5 stig og fast á hæla honum í þriðja sæti er Viðar Ingólfsson, Hrímnir, með 37 stig.
Meðfylgjandi eru video frá keppninni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH