Silfurskotta hæst dæmda 6.vetra hryssan í ár
Silfurskotta og Aðalheiður Anna í afkvæmahópi Ölnis frá Akranesi á Landssýningu árið 2020. Ljósmynd/Louisa Hackl
Silfurskotta frá Sauðanesi var sýnd núna áðan á síðsumarssýningu á Hellu og er nú hæst dæmda 6.vetra hryssa ársins er hún hlaut 8,71 í aðaleinkunn.
Fyrir sköpulag hlaut hún 8,38 og þar af 9,0 fyrir bak og lend. Fyrir hæfileika hlaut hún hvorki meira né minna en 8,88 og þar af 9,5 fyrir samstarfsvilja og 9,0 fyrir tölt, skeið og fegurð í reið. Það var Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sem sýndi hryssuna. Ræktandi er Ágúst Marinó Ágústsson sem er eigandi ásamt Reyni Erni Pámasyni.+
Faðir Silfurskottu er Ölnir frá Akranesi og móðir hennar er Sunna frá Sauðanesi sem er undan Glym frá Innri Skeljabrekku og Minningu frá Sauðanesi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH