Kynbótasýningar Sjö hross hlutu 9,5 fyrir brokk

  • 15. september 2023
  • Fréttir

Steinn frá Stíghúsi, sýnandi Þorgeir Ólafsson Mynd: Nicki Pfau

Ekkert hross hlaut 10 fyrir brokk í ár

Nú þegar kynbótasýningum árið 2023 er lokið þá er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er brokk.

Það var ekkert hross sem hlaut 10 fyrir brokk á árinu en sjö hlutu 9,5 fyrir þennan eiginleika. Í fyrra hlutu tveir hestar 10 fyrir brokk og þrettán hross 9,5 fyrir brokk.

Þessi sjö hross sem hlutu 9,5 fyrir þennan eiginleika eru öll klárhross. Fjögur af þeim eru fimm vetra, Húni frá Ragnheiðarstöðum, Aspar frá Hjarðartúni, Díana frá Bakkakoti og Steinn frá Stíghúsi en hin Tinna frá Silfurbergi 12 vetra, Hylur frá Flagbjarnarholti 10 vetra og Hersir frá Húsavík 8 vetra.

Fimm af þeim hlaut 9,5 á sömu sýningunni eða Vorsýningunni á Gaddstaðaflöum dagana 5. til 9. júní.

Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 fyrir brokk.

Hross Uppruni Sýnandi
Aspar Hjarðartúni Þorgeir Ólafsson
Díana Bakkakoti Jón Ársæll Bergmann
Hersir Húsavík Teitur Árnason
Húni Ragnheiðarstöðum Helga Una Björnsdóttir
Hylur Flagbjarnarholti Eyrún Ýr Pálsdóttir
Steinn Stíghúsi Þorgeir Ólafsson
Tinna Silfurbergi Ævar Örn Guðjónsson

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar