Skagfirskir gæðingar léku listir sínar um helgina
Tumi frá Jarðbrú hlaut 9,06 í úrslitum.
Skagfirðingar eru alla jafnan vel ríðandi og má segja að það hafi sannast um helgina þegar þar fór fram félagsmót í gæðingakeppni, sem var á sama tíma úrtaka fyrir Fjórðungsmót í Borgarnesi. Skagfirðingur er fjölmennasta félagið sem á þátttökurétt á mótinu með alls 603 félaga samkvæmt félagatali á Sportfeng.
Blaðamaður Eiðfaxa tók saman helstu úrslit mótsins en heildarúrslit má nálgast neðst í fréttinni.
Magnaðir hestar í A-flokki
Í A-flokki gæðinga stóð efstur að lokinni forkeppni Vegur frá Kagaðarhóli sýndur af Þórarni Eymundssyni með einkunnina 8,69. Þórarinn var með tvo hesta í úrslitum því Nátthrafn frá Varmalæk vann sér einnig inn þátttökurétt í þeim. Alexander Uekötter reið Veg til úrslita og var einkunn hans þar 8,72 og Nátthrafn hlaut 8,70, sýndur af Þórarni.
Sigurvegari úrslita var Korgur frá Garði, sýndur af Bjarna Jónssyni og hlaut hann 8,81 í úrslitum. Í öðru sæti varð Lokbrá frá Hafsteinsstöðum með 8,76 sýnd af Skapta Steinbjörnssyi og í þriðja sæti varð Kalsi frá Þúfum sýndur af Mette Mannseth með 8,72. Í A-flokki gæðingaflokki 2, sem er áhugamannaflokkur, þar var efsta hrossið Sól frá Hvalnesi sýnd af Philine Weinerth með 8,22 í einkunn.
Í B-flokki gæðinga var List frá Þúfum sýnd af Mette Mannseth efst eftir forkeppni með 8,69. Í úrslitum varð það þó Tumi frá Jarðbrú sem fór með sigur sýndur af Þórarni Eymundssyni og var einkunn hans stórgóð, 9,06. Áður nefnd List varð í öðru sæti með 8,99 í einkunn og í því þriðja Hraunar frá Vatnsleysu sýndur af Arndísi Brynjólfsdóttur með 8,54. Í b-flokki gæðingaflokki 2 varð efsta hrossið Röskur frá Varmalæk 1 setinn af Guðmundi Þór Elíassyni með 8,31 í einkunn.
Hjördís Halla Þórarinsdóttir sigraði keppni í Barnaflokki með einkunnina 8,55 í úrslitum hestur hennar er Flipi frá Bergsstöðum á Vatnsnesi. Systir hennar hún Þórgunnur Þórarinsdóttir lék sama leik og yngri systir sín og varð efst unglinga með 8,52 í einkunn á Hnjúk frá Saurbæ.

Þórgunnur var efst unglinga

Hjördís Halla sigurvegari í barnaflokki
Í B-flokki ungmenna var það svo Guðný Rúna Vésteinsdóttir á hryssunni Þrumu frá Hofsstaðaseli sem hæsta einkunn hlaut í úrslitum 8,54.
Þá var einnig keppt í gæðingatölti fullorðinna þar sem Lífeyrissjóður frá Miklabæ sigraði í gæðingaflokki 1 með Rakel Eir Ingimarsdóttur sem knapa en þau hlutu í einkunn 8,47. Í gæðingaflokki 2 var það Viðja frá Narfastöðum og Ingrid Tvergrov sem unnu með 8,44 í einkunn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH