Skáreim enn leyfð í kynbótadómum-
Ræktunarnefnd FEIF átti fund í Malmö um helgina þar sem rædd var tillaga þess efnis að banna notkun á skáreim með enskum múl þegar riðið er við stangir með keðju í kynbótadómum.
Tillagan var felld. Þótti nefndinni ekki liggja fyrir næg rök til að banna búnaðinn og óskuðu eftir að sjá niðurstöður rannsókna á beislabúnaði áður en hægt væri að taka ákvörðun þess efnis.
Skáreimin var bönnuð í fyrra, bæði í íþrótta- og gæðingakeppni í öllum aðildarlöndum FEIF.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH