Skeiðkappreiðar á föstudag
Skeiðfélagið Náttfari mun halda skeiðkappreiðar í Top Reiter höllinni föstudaginn 30. mars kl. 20:30.
Skráning á staðnum og allir velkomnir. Skráningargjald er 1000 kr. á hest.
Lífland gefur verðlaunin í efstu 3 sætin og er keppnin stigakeppni og mun stigahæsti knapinn hljóta “Skeiðbikarinn” sem gefinn er af Herberti Ólafssyni (Kóka).
Skeiðbikarinn verður veittur í lok árs.
Skeiðfélagið Náttfari
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH