Skeiðknapi ársins

  • 30. október 2021
  • Fréttir
Konráð Valur Sveinsson

Skeiðknapi ársins 2021 er Konráð Valur Sveinsson en valið var kynngjört rétt í þessu á verðlaunahátíð Landsambandsins sem haldin er á Hotel Natura. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:

„Konráð Valur Sveinsson átti góðu gengi að fagna í skeiðgreinum í ár líkt og þau síðustu. Hann varð Íslandsmeistari í 250 metra skeiði á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu en þeir urðu einnig tvöfaldir Reykjavíkurmeistarar á árinu í 250 metra og 100 metra skeiði. Þá voru þeir fljótastir í 100 metra skeiði á Fjórðungsmótinu í Borgarnesi og sigruðu þá grein. Konráð Valur varð einnig stigahæsti knapi skeiðleika Skeiðfélagsins. Konráð Valur hefur þrátt fyrir ungan aldur skipað sér sess á meðal bestu skeiðknapa sögunnar og hlýtur nú  titilinn skeiðknapi ársins fjórða árið í röð.“

Eiðfaxi óskar Konráði innilega til hamingju með árangur ársins!

 

 

Aðrir tilnefndir voru:

  • Benjamín Sandur Ingólfsson
  • Sigurbjörn Bárðarson
  • Sigursteinn Sumarliðason
  • Þórarinn Ragnarsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link