Skeiðleikar á morgun – Góð veðurspá

  • 28. ágúst 2022
  • Fréttir

Fjórðu og síðustu Skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar og Skeiðfélagsins fara fram á morgun, mánudaginn 29.ágúst, og hefjast þeir klukkan 18:00.

Veðurspáin er góð en seinni partinn á morgun spáir meðvindi og lofthita á Selfossi. Skráning á leikanna er opin í dag fram að miðnætt í gegnum Sportfeng.

Styrktaraðili Skeiðleikanna  – hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur-  styrkir um verðlaunagripi sumarsins auk þess að stigahæsti knapi ársins hlýtur 100.000 króna úttekt í versluninni. Þá fær stigahæsti knapi ársins einnig til varðveislu í eitt ár farandgripinn Öderinn sem Gunnar og Kristbjörg Eyvindsdóttir gáfu til minningar um Einar Öder Magnússon.

Dagskrá 18:00

  • 250 metra skeið
  • 150 metra skeið
  • 100 metra flugskeið

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link