Skeiðleikar: Síðasti skráningardagur á morgun

  • 19. maí 2013
  • Fréttir
Skeiðleikar: Síðasti skráningardagur á morgun

„Fyrstu skeiðleikar Skeiðfélagsins verða haldnir á Brávöllum 22. maí nk. Skráningu lýkur á miðnætti mánudaginn 20. maí.

Verður keppnin með sama sniði og venjulega. Keppt verður í 250m og 150m skeiði, auk 100m flugskeiðs! Lagt verður upp úr því að láta þetta ganga snarpt fyrir sig og hafa leikana sem áhugaverðasta — bæði fyrir knapa og áhorfendur.

Vélaverkstæði Þóris ehf. styrkir um verðlaunagripi og helsti styrktaraðili Skeiðfélagsins, hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur ehf., mun gefa hnakk þeim sem fyrst slær Íslandsmet á skeiðleikum þetta sumarið. Ljúffeng súkkulaðirúsína í pylsuendanum það.

Skráningargjaldið er krónur 2500.- á  hest og skráning fer fram á http://www.skraning.is/vidburdir/skeidleikar-1/ “ segir í tilkynningu frá Skeiðfélaginu

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link