Meistaradeild KS í hestaíþróttum Skeiðmót Meistaradeildar KS

  • 11. apríl 2026
  • Fréttir
Sunnudaginn 12.aprí á Sauðárkróki í beinni útsendingu á EiðfaxaTV

Keppni í gæðingaskeiði og 150 metra skeiði í Meistaradeild KS fram á morgun, sunnudaginn 12.apríl, á Sauðárkróki og hefst keppni klukkan 11:00. Er þetta næst síðasta mótið í deildinni á þessu keppnistímabili en lokamótið fer fram þann 17.apríl þegar keppt er í tölti og flugskeiði í gegnum Svaðastaðahöllina þar sem mótið fer fram.  Skeiðmótið er í boði Steinullar hf og Steypustöðvar Skagafjarðar og sýnt er beint frá mótinu á EiðfaxaTV.

Flugavekurð í fyrirúmi

Mörg frábær skeiðhross eru skráð til leiks bæði í gæðinga- og 150 metra skeiði. Í gæðingaskeiði ber fyrstan að nefna Konráð Val Sveinsson á Kastori frá Garðshorni á Þelamörk, sem þarf vart að kynna fyrir þeim sem fylgjast með hestaíþróttum. Þá er Daníel Gunnarsson og Strákur frá Miðsitju á ráslista en þeir standa ofarlega á stöðulista síðasta árs í þessari grein með 8,08 í einkunn á Reykjavíkurmeistaramóti. Auk þessara kappa eru mörg hross sem afrek hafa sýnt á skeiði, bæði í öðrum keppnisgreinum sem og kynbótadómi á meðal keppenda, og allt getur gerst.

Þegar rennt er yfir þátttakendur í 150 metra skeiðinu ber líka að nefna fyrstan Konráð Val á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu, einum sigursælasta skeiðhesti allra tíma sem er efstur á stöðulista síðasta ár í þessari grein á 13,91 sekúndu. Þá hafa Mette Mannseth og Vívaldi frá Torfunesi gert það ákaflega gott í hinum ýmsu skeiðgreinum og þar á meðal 150 metra skeiði. Þá hafa þær Tign frá Ríp sem setinn er af Sigurði Heiðari Birgissyni og Hrina frá Hólum sem Þórey Þula Helgadóttir keppa á náð í góða tíma í þessari vegalengd.

En fyrri árangur og spádómar hafa lítið með það að gera hvernig fer að lokum og því vert að fylgjast með þessum spennandi skeiðdegi í Meistaradeild KS í hestaíþróttum á Sauðárkróki.

Ráslistar
Nr Knapi Hestur
Gæðingaskeið PP1 Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
1 Julian Veith Hátíð frá Ísalæk
2 Guðmar Freyr Magnússon Gljásteinn frá Íbishóli
3 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk
4 Herdís Björg Jóhannsdóttir Urla frá Pulu
5 Þórarinn Eymundsson Lukka frá Breiðholti, Gbr.
6 Lilja Dögg Ágústsdóttir Stanley frá Hlemmiskeiði 3
7 Herjólfur Hrafn Stefánsson Álmur frá Reykjavöllum
8 Þórey Þula Helgadóttir Sólon frá Völlum
9 Sigurður Steingrímsson Gjafar frá Hrafnsstöðum
10 Mette Mannseth Töfri frá Þúfum
11 Magnús Bragi Magnússon Keilir frá Kjarnholtum I
12 Björg Ingólfsdóttir Kjuði frá Dýrfinnustöðum
13 Þorsteinn Björn Einarsson Óskar frá Eystri-Sólheimum
14 Bjarni Jónasson Eðalsteinn frá Litlu-Brekku
15 Þorsteinn Björnsson Mörk frá Hólum
16 Matthías Sigurðsson Gammur frá Efri-Þverá
17 Egill Már Þórsson Sóldögg frá Króksstöðum
18 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kári frá Morastöðum
19 Agnar Þór Magnússon Fjóla frá Garðshorni á Þelamörk
20 Elvar Einarsson Snælda frá Syðra-Skörðugili
21 Atli Freyr Maríönnuson Elmar frá Staðarhofi
22 Emma Thorlacius Númi frá Hólum
23 Daníel Gunnarsson Strákur frá Miðsitju
24 Vignir Sigurðsson Eyfjörð frá Litlu-Brekku
25 Kristján Árni Birgisson Súla frá Kanastöðum
26 Björgvin Helgason Karlsberg frá Kommu
27 Elvar Logi Friðriksson Hetja frá Bessastöðum
Skeið 150m P3 Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
1 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kári frá Morastöðum
1 Vignir Sigurðsson Sigur frá Bessastöðum
2 Elvar Logi Friðriksson Kuldi frá Skipaskaga
2 Unnur Sigurpálsdóttir Elva frá Miðsitju
3 Elvar Einarsson Gáski frá Varmalandi
3 Daníel Gunnarsson Elding frá Hofsstaðaseli
4 Þórey Þula Helgadóttir Hrina frá Hólum
4 Þórarinn Eymundsson Sviðrir frá Reykjavík
5 Sigurður Heiðar Birgisson Tign frá Ríp
5 Björgvin Helgason Karlsberg frá Kommu
6 Þorsteinn Björn Einarsson Gerpla frá Hofi á Höfðaströnd
6 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Spes frá Geitagerði
7 Emma Thorlacius Númi frá Hólum
7 Guðmar Freyr Magnússon Spölur frá Efri-Þverá
8 Matthías Sigurðsson Þrymur frá Bergholti
8 Agnar Þór Magnússon Kvistur frá Kommu
9 Vera Evi Schneiderchen Sturla frá Bræðratungu
9 Bjarni Jónasson Eðalsteinn frá Litlu-Brekku
10 Þorsteinn Björnsson Taumur frá Hólum
10 Herjólfur Hrafn Stefánsson Rjúpa frá Hólum
11 Atli Freyr Maríönnuson Rún frá Staðarhofi
11 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II
12 Sigurður Steingrímsson Gjafar frá Hrafnsstöðum
12 Kristján Árni Birgisson Röst frá Hólum
13 Björg Ingólfsdóttir Grímnir frá Þóroddsstöðum
13 Mette Mannseth Vívaldi frá Torfunesi
14 Herdís Björg Jóhannsdóttir Urla frá Pulu
14 Ívar Örn Guðjónsson Buska frá Sauðárkróki

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link