Skiptir þetta máli?

  • 31. desember 2022
  • Fréttir

Skiptir ímynd og orðspor íslenska hestsins okkur hestamenn máli? Getum við og viljum við hafa áhrif á þá umfjöllun sem hesturinn fær hér á landi sem og erlendis? Skiptir það okkur máli hvers konar myndefni er nýtt til kynninga á hestinum okkar, og viljum við hafa eitthvað um það að segja? Er mikilvægt að við kynnum hestinn fyrir almenningi og áhugasömum, ungum sem eldri – og stækkum þannig “Íslandshestaheiminn” okkar?

Ég vona svo sannarlega að hestamenn svari þessum spurningum játandi því þetta skiptir okkur miklu máli, nú sem aldrei fyrr. Að auka vitund fólks og styrkja ímynd íslenska hestsins hefur sennilega aldrei verið jafn mikilvægt og nú, hvort sem um er að ræða innan íslensks samfélags eða á alþjóðavettvangi.

Að við hestamenn, hvort sem við störfum í greininni eða njótum hennar í frístundum, komum fram sem sameinað afl, fræðum almenning um hestinn og kosti hans, vekjum á íslenska hestinum jákvæða athygli og sendum skýr skilaboð um rétta meðhöndlun og notkun hans.

Það er einmitt megin markmið verkefnisins HORSES OF ICELAND, að samræma markaðs- og kynningarstarf sem nýtist heildarhagsmunum er varða hestinn til þess að byggja upp orðspor og styrkja ímynd okkar frábæra íslenska hests á heimsvísu, að fjölga iðkendum hestaíþróttarinnar og að auka gjaldeyristekjur. Með öflugu kynningarstarfi fjölgum við hestamönnum á heimsvísu, aukum eftirspurn eftir íslenska hestinum og vörum og þjónustu honum tengdum og öflum gjaldeyristekna sem skila sér inn í greinina, henni til framdráttar.

HORSES OF ICELAND verkefnið hefur náð góðum árangri og skilaboð okkar ná til rúmlega 130 þúsund fylgjenda á samfélagsmiðlum víðsvegar um heiminn. Meira en 50 milljón snertingar hafa náðst við markhópa á samfélagsmiðlum auk þess sem greinar og þættir um íslenska hestinn hafa birst í tímaritum og sjónvarpsþáttum þar sem áhorfendafjöldinn er allt að 290 milljónir manna. Hesturinn hefur auk þess verið kynntur á sýningum og viðburðum jafnt innanlands sem erlendis. Frá því að verkefninu var hleypt af stokkunum árið 2016 hafa met verið sett í útflutningi hrossa og í fjölda ferðamanna sem fer á hestbak hérlendis.

Forystumenn innan hestamennskunnar hafa unnið ötullega að því að tryggja áframhaldandi stuðning ríkisins við verkefnið og við fögnum því að framtíð þess er tryggð a.m.k. til ársins 2025. Það er mikilvægt að við höfum langtímasjónarmið að leiðarljósi í markaðs- og kynningarstarfi íslenska hestsins og að slíkt starf sé ekki tímabundið átak heldur hugsað til framtíðar.

Spennandi viðburðir eru framundan á árinu 2023 og þar ber líklega hæst heimsmeistaramót í Hollandi í ágúst. Einstaklingum, fyrirtækjum og samtökum þeirra sem rækta íslenska hesta, framleiða og/eða selja vörur og þjónustu tengda hestinum býðst að taka þátt í Horses of Iceland verkefninu. Áhugasömum er bent á að hafa samband við verkefnastjóra hjá Íslandsstofu fyrir frekari upplýsingar eða kynna sér verkefnið á vefnum www.horsesoficeland.is.

Horses of Iceland er verkefni okkar allra sem elskum og dáum íslenska hestinn. Þegar öll helstu hagsmunasamtök, ræktendur, fyrirtæki og eigendur íslenska hestsins vinna saman verður rödd okkar sterkari, slagkrafturinn meiri og við náum til breiðari hóps. Stöndum saman vörð um glæsta framtíð íslenska hestsins!

 

Með ósk um gleðilegt nýtt ár og þökkum fyrir það liðna.
Þórdís Anna Gylfadóttir
verkefnastjóri Horses of Iceland

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link