Skortur á reglum um tæknifrjóvganir
Ólafur Einarsson, hrossabóndi á Torfastöðum í Biskupstungum, hefur áhyggjur af þróun tæknifrjóvgana hér á landi og telur vanta ítarlegri reglur um þær. „Ég er ekki á móti tæknifrjóvgunum sem slíkum, en ef við setjum engar reglur um þær gætum við vaknað með útrásar timburmenn eftir einhver ár. Eftir því sem ég kemst næst eru mjög strangar reglur um fósturvísaflutninga í mörgum hestakynjum með þróaða ræktun. Mér er líka kunnugt um að erlendir ræktendur furða sig á að tæknifrjóvganir skuli yfirleitt vera leyfðar í svo litlum hópi sem hestakynið á Íslandi er. Ákveðin hætta sé á að stofnin muni verða of skyldur og einsleitur á tiltölulega skömmum tíma ef fáir stóðhestar fá mjög mikla notkun. Ég mun taka þetta mál upp í stjórn Félags hrossabænda á næstunni og vona að þetta verði tekið til alvarlegrar umræðu þar,“ segir Ólafur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH