Skotinn með ör í lendina
Á föstudaginn s.l. tóku eigendur hestsins Ýmis frá Bakka eftir því að búið var að skjóta hann með ör úr boga. Örin hæfði hestinn í lendina en hesturinn var í stykki fyrir framan húsið þeirra. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu Arnars Kjærnested, eiganda hestsins.
Búið er að kæra málið til lögreglu og vonast Arnar eftir því að málið verði rannsakað til hlítar. „Okkur er mjög brugðið að þetta skildi gert og vekur óneitanlega óöryggi hjá manni með sig, sitt og sína. Örin náði um 15 sm inní læri hestsins og er því alveg öruggt að henni var skotið af afli og fremur stuttu færi. Hann hefur hlotið meðferð dýralæknis og horfir ágætlega við þessu þrátt fyrir þennan viðurstyggislega gjörning einhvers níðings og mannleysu,“ kemur fram í stöðuuppfærslunni.
Í tilkynningu á facebook síðu Lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að framkvæmd hafi verið húsleit í nágrenni Selfoss en þar hafi grunaður einstaklingur verið handtekinn auk þess að hald var lagt á boga, örvar og nokkurn fjölda eggvopna. Jafnframt kemur fram að rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi sé með málið til meðferðar og að rannsókn miði vel.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH