Skráning á Áhugamannamót Íslands til miðnættis!
Félagið hefur nú tilkynnt að skráningarfrestur á mótið hafi verið framlengdur og hafa knapar því tíma fram á miðnætti í kvöld, 4. ágúst, til að tryggja sér þátttökurétt.
Mótið er frábær vettvangur fyrir áhugafólk um keppni, en þátttökurétt eiga allir sem náð hafa 22 ára aldri og hafa ekki keppt í meistaraflokki í íþróttakeppni á síðastliðnum fimm árum. Mótanefnd Sörla hvetur áhugasama eindregið til að nýta þennan framlengda frest og skrá sig til leiks á þetta skemmtilega mót. Skráning fer fram í gegnum vefinn sportfengur.com.
Keppt verður í eftirfarandi greinum og flokkum:
1. flokkur: T3, T4, V2, F2, PP1, 100 m skeið, B-flokkur og A-flokkur.
2. flokkur: T3, T4, V2, F2, B-flokkur og A-flokkur.
3. flokkur: T7 og V5.
Rétt er að taka fram að mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður greinar náist ekki næg þátttaka. Þeir sem hafa spurningar eða velta einhverju fyrir sér varðandi framkvæmdina geta sent fyrirspurn á netfangið motanefnd@sorli.is.
Nú er um að gera að hafa snarar hendur og tryggja sér pláss á Hraunhamarvelli um helgina áður en fresturinn rennur út!
Skráning á Áhugamannamót Íslands til miðnættis!
Safír í hæstu hæðir
Glæsilegur hópur Íslendinga á leið á Norðurlandamót í Svíþjóð