Skráning á Svellkaldar hafin -myndir
Það verður eflaust mikið um dýrðir í skautahöllinni í Laugardal þann 12.mars, en þá fer fram ístöltsmót kvenna „Svellkaldar konur.“
Nú er tækifærið fyrir svellkalda kvenskörunga að hamra ísfjöðrunum undir gæðingana og spreyta sig á ísnum.
Skráning á „Svellkaldar konur“ er hafin hér á heimasíðu Gusts. Eingöngu verður skráð á vefnum og þarf að ganga frá greiðslu skráningargjalda með greiðslukorti um leið. Skráningargjald 4.500 kr. Kemur fram í fréttatilkynningu frá svellköldum mótshöldurum að eingöngu sé pláss fyrir 100 keppendur á mótið og því gildir lögmálið „fyrstir skrá – fyrstir fá.“
Til þess að hita upp fyrir mótið eru hér nokkrar myndir frá mótinu í fyrra.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH