Skráning hafin á opið íþróttamót Gusts
Íþróttamót Gusts sem er opið mót, mun fara fram í Glaðheimum í Kópavogi dagana 13.- 15. maí nk.
Skráning fer fram dagana 5.-9. maí á heimasíðu hestamannafélagsins undir liðnum skráning.
„Keppnisgreinar verða eftirfarandi:
Börn : Tölt, fjórgangur og fimi A
Unglingar: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið og fimi A.
Ungmenni: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið, slaktaumatölt og flugskeið.
Fullorðnir 2. flokkur: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið, slaktaumatölt og flugskeið.
Fullorðnir 1. flokkur: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið, slaktaumatölt og flugskeið.
Skráningagjöld eru:
Börn og unglingar: 2500 kr. hver skráning.
Aðrir: 3500 kr. hver skráning.
Ganga þarf frá greiðslu skráningargjalda með greiðslukorti við skráningu,“ segir á heimasíðu Gusts.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH