Skráning hafin á Sölumót
Skráning er hafin á Sölumótið 2011 sem haldið verður í Rangárhöllinni laugardaginn 1.október n.k.
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
· Fjórgangi
· Fimmgangi (skeið riðið í geng um höllina)
· Tölti T7 (Hægt tölt, frjáls ferð)
Skráningargjald er 3000 kr/per hest (hvort sem keppt er í einni grein eða fleiri)
Sölu- og kynningarbásar verða í veitingasal hallarinnar og eru þeir sem hafa áhuga á að kynna starfsemi og/eða selja varning eða þjónustu vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Vigni í síma 8943106.
Skráning er til miðnættis mánudagsins 26.september, en skráning fer eingöngu fram í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
Við skráningu verður að taka fram IS númer og nafn hests, faðir, móðir, lit og árangur í kynbótasýningu og/eða keppni vilji menn að það komi fram. Einnig verður að koma fram nafn knapa auk tölvupósts og símanúmeri seljanda.
Skráningargjald skal greiðast fyrir miðnætti 26.september á eftirtakinn reikning:
586-14-402187 kt.291169-5389
Nánari upplýsingar veita: Ólafur Þórisson 8637130, Hallgrímur Birkisson 8642118, Vignir Siggeirsson 8943106, Steinn Máson 8939966 og Davíð Jónsson 8973648.
Einnig má finna viðtal við Hallgrím Birkisson um mótið hér.
A landsliðshópur Íslands
Agnar Snorri ráðinn til norska landsliðsins