Skráningar á kynbótasýningar vorsins

  • 15. apríl 2013
  • Fréttir
Skráningar á kynbótasýningar vorsins

„Í dag 15. apríl var opnað á skráningar á allar kynbótasýningar vorsins þannig að nú ættu menn ekki að þurfa að vera á síðustu stundu að skrá. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að fara inn á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins www.rml.is en þar er valmynd á forsíðunni „skrá á kynbótasýningu“. Á sömu heimasíðu undir búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar má finna leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu. Síðasti skráningardagur er að jafnaði viku fyrir sýningu (oftast á föstudegi), nema í þeim tilfellum þar sem sýning fyllist þá lokast sjálfkrafa á sýninguna, þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Lena Reiher og Oddný Kristín Guðmundsdóttir munu leiðbeina þeim sem þess þurfa í síma 516-5000, einnig verður hægt að senda þeim tölvupóst á netföngin [email protected] og [email protected]. Hér fyrir neðan má sjá sýningar vorsins og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur.

Dags.

Staður

Loka skráningar- og greiðsludagur

29.4-3.5

Skagafjörður

Föstudagur 19. apríl

6.5- 10.5

Selfoss

Föstudagur 26. apríl

13.5-17.5

Víðidalur

Föstudagur 3. maí

15.5-17.5

Akureyri

Þriðjudagur 7. maí

21.5-24.5

Sörlastaðir

Föstudagur 10. maí

21.5-24.5

Hvammstangi

Föstudagur 10. maí

27.5-31.5

Selfoss

Föstudagur 17. maí

27.5-31.5

Skagafjörður

Föstudagur 17. maí

27.5-28.5

Hornafjörður

Föstudagur 17. maí

29.5-31.5

Stekkhólmi

Þriðjudagur 21. maí

3.6-7.6

Melgerðismelar

Föstudagur 24. maí

3.6-14.6

Hella

Föstudagur 24. maí

10.6-14.6

Miðfossar

Föstudagur 31. maí

 

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðu RML, www.rml.is, þegar þær eru klárar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500 kr en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 13.500 kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin [email protected] og  [email protected] . Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Minnum á að ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt og allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.

 

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin [email protected] og  [email protected],“ segir í tilkynningu frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link