Skráningu á gæðingamót og úrtöku Spretts
Skráningu á gæðingamót og úrtöku Spretts lýkur í dag kl. 18!
Minnum á að í dag er síðasti skráningadagur á gæðingamót Spretts, sem jafnframt er úrtaka fyrir LM. Mótið fer fram dagana 31.05 – 01.06 2014. Skráning er í gegnum Sportfeng, www.sportfengur.com undir „Mót.“ Skráning er opin til kl. 18 í dag þriðjudag.
ATHUGIÐ! Einungis skuldlausir félagsmenn eiga þátttökurétt.
Skráningargjald í gæðingakeppnina er kr 4.000 en fyrir börn og ungingar kr 2.000. Skráningargjald fyrir skeiðgreinar er kr 3.000.
Athugið: Skráning fer ekki í gegn fyrr en skráningargjald hefur verið greitt! Þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk verða að tilkynna það með því að senda póst á[email protected]
Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:
A-flokk gæðinga
A-flokk gæðinga áhugamenn
B-flokk gæðinga
B-flokk gæðinga áhugamenn
Ungmenni
Unglingar
Börn
Skeið 100m, 150m, 250m
Pollar
Á gæðingamótinu verður boðið upp á sérstakan flokk fyrir vana polla. Pollum er ekki sætaraðað en allir frá þátttökuverðlaun. Pollum er ekki heimilt að mæta á stóðhestum. Pollar þurfa ekki að skrá sig í gegnum Sportfeng heldur á staðnum.
Glæsileg verðlaun verða í öllum greinum og að auki verður gæðingur mótsins valinn sem og knapi mótsins. Áhugamenn í A og B flokki ríða forkeppni með reyndari knöpum en áhugamenn ríða svo sérstök úrslit sunnudaginn 1. júní og þurfa þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk að tilkynna það með því að senda póst á [email protected](knapi + hestur + keppnisflokkur).
Vinsamlega veitið því athygli að í gæðingakeppni þarf hesturinn að vera í eigu skauldlausra Sprettsfélaga. Keppendur eru beðnir að skoða vel reglur LH sem gilda um þátttöku í gæðingakeppni og þá sérstaklega.
reglur varðandi keppnishesta / réttindi til skráningar
reglur varðandi fótabúnað, beislisbúnað og útbúnað knapa
járningar
Mótanefnd auglýsir eftir aðstoð við ýmis störf á mótinu, en framgangur mótsins veltur alfarið á góðum stuðningi félagsmanna. Þeir sem eru tilbúnir til að aðstoða geta sent tölvupóst á [email protected]
Með kveðju
Mótanefnd Spretts
www.sprettarar.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH