Kynbótasýningar Skráningu lokið á Miðsumarssýningu

  • 14. júlí 2026
  • Fréttir

Huld frá Fákshólum, sýnandi Helga Una Björnsdóttir Mynd: Mystery horses

Ekki náðist lágmarksfjöldi á Akureyri.

Skráningu lauk í gær á Miðsumarssýningar en tvær voru á dagskrá 20. – 24. júlí, ein á Rangárbökkum og hin á Akureyri.

76 hross eru skráð á Miðsumarsýninguna á Rangárbökkum en einungis tíu hross á Akureyri. Samkvæmt RML verður sýningin ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross.

Dómarar á Rangárbökkum eru Sveinn Ragnarsson, Guðbjörn Tryggvason og Heiðrún Sigurðardóttir.

Allar kynbótasýningar á Íslandi eru sýndar í beinni á EiðfaxaTV en einnig er hægt að horfa á þær eftir á.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link