Skráningu lýkur í kvöld
Skráningu á Stórmót Geysis lýkur í kvöld þriðjudagskvöld. Mótið verður haldið á Rangárbökkum við Hellu dagana 31.júlí- 2.ágúst 2015. Mótið er opið gæðingamót fyrir alla og einnig verður boðið uppá einn opinn flokk í tölti og svo 100m skeið. Nú er um að gera að gera sér glaðan dag á Hellu um verslunarmannahelgina.
Skráning er hafin og fer hún fram á heimasíðu Geysis hmfgeysir.is undir hnappnum skráningarkerfi eða á sportfeng.com undir hnappnum skráningarkerfi. Skráningu lýkur þriðjudaginn 28.júlí kl 23:59, einnig skal greiða þátttökugjöld fyrir þann tíma og er skráningargjald 5000kr nema frítt er í barna og unglingflokk
.
keppt verður í eftirtöldum flokkum
A-flokkur
A-flokkur áhugamanna( 2.flokkur fimmgangur F2 í skráningu)
B-flokkur
B-flokkur áhugamanna(2.flokkur fjórgangur V2 í skráningu)
C-flokkur (2,flokkur Þrígangur í skráningu)
Ungmennaflokkur
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Tölt T3 opinn flokkur
100m skeið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH