Skuggamenn felldu sameiningartillögu
Tillaga um sameiningu hestamannafélaganna Skugga og Faxa var kolfelld á aðalfundi Skugga í gær.
Rúmlega 60 manns sem hann sátu fundinn og urðu miklar umræður um tillöguna skv. því sem fram kemur á vefsíðu Skugga. Niðurstaða atkvæðagreiðslu varð sú að nei sögðu 46 og já 16.
Aðalfundi var frestað því nú á eftir að kjósa í stjórn og nefndir hestamannafélagsins Skugga fyrir nk. vetur. Fljótlega verður því boðað til framhaldsaðalfundar.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing