Landsamband hestamanna Skýrt kveðið á um gilda sýningu í úrtökum

  • 24. maí 2026
  • Fréttir
Reglubreyting hjá LH

Á vef Landssambands hestamannafélaga (LH) kemur fram að stjórn LH hafi samþykkt orðalagsbreytingu á reglugerð um Landsmót og fjórðungsmót til þess að fyrirbyggja misskilning varðandi val þátttakenda.

Svo virðist sem nokkuð hafi borið á mistúlkun á reglum, þar sem þeirri skoðun hafi gætt að allir sem skráðir væru í úrtöku ættu sjálfkrafa rétt á að vera fulltrúar síns félags á Landsmóti eða fjórðungsmóti. Reglan kveður hins vegar skýrt á um að ljúka þurfi gildri sýningu í úrtöku síns félags til að öðlast þennan rétt.
Til að taka af allan vafa lagði keppnisnefnd LH til við stjórn sambandsins að gerð yrði breyting á orðalagi í 5. grein reglugerðarinnar. Nýja viðbótin við greinina er svohljóðandi: „Til að eiga möguleika á að öðlast þátttökurétt á Landsmóti þarf að ljúka gildri sýningu í úrtöku hestamannafélags.“

Stjórn LH samþykkti þessa breytingu á orðalagi með vísan í grein 10.4 í lögum LH, sem veitir stjórninni heimild til þess að breyta reglugerðum á milli landsþinga.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link