Slaufaði með stæl

  • 2. október 2012
  • Fréttir
Róbert Bergmann lauk keppnistímabilinu með stæl þegar hann varð Íslandsmeistari í tölti unglinga á Brynju frá Bakkakoti.

Róbert Bergmann lauk keppnistímabilinu með stæl þegar hann varð Íslandsmeistari í tölti unglinga á gæðingshryssunni Brynju frá Bakkakoti. Róbert hlaut 8,06 í einkunn í úrslitunum, en svo há einkunn í yngri flokkunum er mjög óvenjuleg, ef ekki einsdæmi. Þau Róbert og Brynja hafa í heildina tekið átt farsælan feril í barna- og unglingaflokki og alltaf bætt í þegar á móti hefur blásið. Brynja er 9 vetra undan Þór frá Prestsbakka og Smellu frá Bakkakoti, Óðsdóttur frá Brún. Hún er alhliða hryssa með 8,02 í aðaleinkunn. Hún var þó í eitt skipti sýnd sem klárhryssa í kynbótadómi og hlaut þá 9,0 fyrir tölt, hægt tölt, brokk, stökk, vilja og fegurð. En í það skiptið ekki nema 7,53 fyrir sköpulag. Sýnandi Sigurður Sigurðarson. Án efa fáum við að sjá Róbert Bergmann í hnakknum næstu árin, en Brynja hefur hins vegar tekið sér hlé frá keppni og er nú fengin við Kráki frá Blesastöðum 1a. Myndin er tekin á Reykjavíkurmóti í hestaíþróttum þar sem Róbert sigraði í tölti unglinga á Brynju með 7,56 í einkunn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link