Smáramenn með vetrarmót
Fyrsta vetramót hestamannafélagsins Smára verður haldið næstkomandi laugardag 14. febrúar.
„Mótið verður haldið í Torfdal á keppnissvæði félagssins eins og fyrri ár. Það mun fara eftir veðri og vallarfærð hvort að mótið verði haldið úti, eða inni í höll. Pollarnir munu ríða inni.
Mótið byrjar kl 14:00 á Pollaflokk, tekið er við skráningum inni í
höll frá kl 13:30
Keppt verður í sömu flokkum og síðustu ár
- Pollaflokk
- Unghrossaflokk (hross fædd 2010 og 2011)
- Barnaflokk
- Unglingaflokk
- Ungmennaflokk
- II Flokk
- I Flokk
Bæði eigandi hests og knapi þurfa að vera virkir félagsmenn í Smára
svo þáttaka sé gild.
Skráningargjald er 1500kr og frítt fyrir börn og polla. Vonumst til að sjá sem flesta,“ segir í tilkynningu frá Smára.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH