Sögulegur reiðtúr um slóðir Njálu
Frá Njálureið árið 2025. Ljósmyndir með fréttinni: Árni Sæberg
Reiðleiðin liggur úr Fljótshlíðarrétt að Káragerði við Bergþórshvol og er áætlað að vegalengdin sé um 20 kílómetrar. Þetta er einstakt tækifæri fyrir hestafólk til að sameina hestamennsku og íslenskan sagnararf á sjálfum söguslóðum Brennu-Njáls sögu.
Sagnamennska og veisluhöld
Hermann Árnason mun stýra ferðinni sem leiðangursstjóri, en honum til halds og trausts verða sagnamennirnir Lárus Bragason og Friðbjörn Garðarsson sem munu miðla sögum og fróðleik á leiðinni.
Að reið lokinni verður slegið upp sannkallaðri matarveislu. Það eru hinar landeysku valkyrjur, Ásta í Seli og Didda í Hólmi, sem halda utan um kræsingarnar. Eftir matinn mætir Hlynur Snær með gítarinn og heldur uppi stemningu til að fagna góðum degi í hnakknum.
Skikkja er skilyrði
Sérstaða Njálureiðarinnar felst ekki síst í því að þátttakendur klæðast skikkjum til að komast í rétta andann, og er skikkja algjört skilyrði fyrir þátttöku. Þeir sem eiga skikkju frá því á síðasta ári fá afslátt af þátttökugjaldi en annars er hægt að kaupa nýja skikkju við skráningu.
Helstu upplýsingar
- Dagsetning 22. ágúst 2026
- Reiðleið Fljótshlíðarrétt – Káragerði (ca. 20 km)
- Leiðangursstjóri Hermann Árnason
- Sagnamenn Lárus Bragason og Friðbjörn Garðarsson
- Verð (með eigin skikkju) 10.000 kr.
- Verð (með nýrri skikkju) 15.000 kr.
Innifalið í verði er reiðin sjálf, sagnamennska, matarveisla og skemmtun.
Skráning fer fram á nýrri heimasíðu Njálufélagsins og nálgast má upplýsingar með því að smella hér.
Hæst dæmdi hestur í heimi
Glæsilegur hópur Íslendinga á leið á Norðurlandamót í Svíþjóð
Stórsókn hjá Spretti