Sölumót á laugardag
Sölumót verður haldið að Skeiðvöllum laugardaginn 6 október. Það eru Miðkot, Hemla, Arabær og Ice-events sem standa að mótinu:
„Mótið verður með svipuðu sniði og síðast, allir hestar sem taka þátt eru til sölu, þrír dómarar sem gefa tölur, úrslit riðin og frábær verðlaun í boði.
Mótið hefst klukkan 11:00 og þær greinar sem keppt verður í er fjórgangur, fimmgangur, tölt T7 og 100m skeið (handklukka).
Skráning er hafin á netfangið [email protected] og lýkur miðvikudagskvöldið 3. október kl 23:59.
Í skráningu skal koma fram IS-númer og nafn hests, litur, faðir, móðir, verðflokkur, keppnisgrein, knapi og umráðamaður ásamt upplýsinum um símanúmer og netfang seljanda og svo afrekaskrá ef seljandi vill.
Skráningargjald er 3000 kr á hest og greiðist inn á 586-14-402187 kt.291169-5389 um leið og skráð er. Senda þarf kvittun á netfangið [email protected]. Skylt er að skrá hrossið í verðflokk.
Verðflokkarnir eru eftirfarandi:
-
0-600.000
-
600.000 – 1.200.000
-
1.200.000 – 1.800.000
-
1.800.000 – 3.000.000
-
3.000.000 +
midkot.is
hemla.is
arabaer.is
iceevents.is“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH