„Sölumótið heppnaðist vel“
Forsvarsmenn sölumótsins sem haldið var á Skeiðvöllum segja það hafa heppnast vel og talsverður áhugi hafi verið eftir mótið hjá kaupendum.
Í samtali við einn aðstandanda mótsins sagði hann líkur á hátt í tíu sölum í tengslum við þetta mót og að aðsóknin hafi verið prýðileg. „Veðrið sett reyndar strik í reikninginn en Hellisheiðin var erfið yfirferðar skökum slyddu“ sagði viðmælandi Eiðfaxa sem sagðist vita af áhugasömu fólki sem hafi snúið frá sökum færðarinnar.
Næsta sölumót verður haldið í Sprettshöllinni í nóvember og verður fróðlegt að vita hvenig viðbrögð verða við þessari tegund sölusýninga á höfuðborgarsvæðinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH