Sölusýning 9. nóvember
Föstudagskvöldið 9.nóvember kl 20:00 verður haldin sölusýning í nýrri reiðhöll á Króki/Margrétarhofi í Ásahrepp. Þar hefur verið gríðarleg uppbygging á öllum byggingum og er í dag ein flottasta aðstaða á landinu. Þar verður fjöldi frábærra hrossa til sölu og eitthvað fyrir alla. Hver veit nema að draumahesturinn þinn leynist þar. Kaffivélin á fullu og dælan gengur gegn vægu gjaldi. Allir velkomnir.
Skráning á sölusýninguna er á [email protected] og lýkur miðvikudagskvöldið 7.nóvember kl 23:59.
Skráningargjöld skal leggja inn á : 0308-13-300725 kt. 031277-3619 og senda kvittun á [email protected].
Skráningargjaldið er 3.500 á hvern hest.
Skráning skal vera á þessu formi:
• IS númer:
• Nafn hests/hryssu:
• Litur:
• F:
• M:
• Verð:
• Knapi:
• Umráðamaður:
• Sími:
• Netfang:
• Lýsing:
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH