Sölusýning á Melgerðismelum

  • 26. september 2011
  • Fréttir
Sölusýning á Melgerðismelum

Hrossaræktarfélagið Náttfari stendur fyrir sölusýningu á Melgerðismelum, Stóðréttardaginn 8. október n.k. að er fram kemur á heimasíðu félagsins.

 
„Boðið er upp á sýningu taminna hrossa í reið og sýningu unghrossa í Melaskjóli.
 
Skráning berist á netfangið [email protected] með upplýsingum um:
 
A. Nafn hross og fæðingarnúmer þess
B. Lýsing eiganda/umráðamanns á hrossinu
C. Verð
D. Eiganda og/eða umráðamann
 
Gefin verður út sýningarskrá auk þess sem hrossin verða mynduð og þær upplýsingar gerðar aðgengilegar á Netinu.
 
Verðskrá sölusýningarinnar er tvískipt:
Hross í reið, mynduð og auglýst á Netinu: 3500.-
Ótamin hross, upplýsingar settar á Netið: 1500.-
 
Félagar í Náttfara fá 500.- kr afslátt á þessum verðum.
 
Upplýsingar fást hjá Þorsteini Egilson, 8952598/[email protected].“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link