Sölusýning í Hestheimum á sunnudag
Síðasta sölusýning í Hestheimum fyrir jól. Sölusýningin hefst kl 14:00. Í hléinu verður súpa í boði söluhópsins eins og undanfarin ár og í ár mun það vera Humarssúpa af bestu gerð. Einnig verða nokkur uppboð á frábærum hestakosti, nú er um að gera að ná sér í frábæran hest á einstöku verði. Vonumst til að sjá sem flesta.
Skráningar skulu berast á netfangið [email protected] fyrir kl 23:59 fimmtudagskvöld 3.nóvember.
Taka skal fram: Nafn , lit og IS-númer hests, einnig föður og móður hestsins. Nafn, símanúmer og netfang eiganda/umráðamanns , nafn knapa, í hvaða verðflokk hesturinn fer, ásamt lýsingu. Ef einhverjar af þessum upplýsingum vantar munu þær líka vanta í söluskránna.(ekki nóg að senda bara IS-númer hestsins).
Skráningargjald er 3500 kr á hest og skal greiðast inn á reikning 0308-13-300725 með kt:031277-3619
Söluhópurinn Hestheimum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH