Spenna fyrir loka kvöldinu í Meistaradeildinni
Lokakvöld Meistaradeildarinnar mun fara fram fimmtudaginn 7.maí í Samskipahöllinni. Engir áhorfendur verða leyfðir á staðnum en að sjálfsögðu verður sýnt beint frá keppninni á RÚV. Í lok kvöldsins verða sigurvegarar krýndir bæði knapar og keppnislið.
Fyrir lokakvöldið er Jakob Svavar Sigurðsson í forystu í einstaklingskeppninni með 38 stig og er líklegur til að verja titil sinn frá því í fyrra en hann sigraði einstaklingskeppnina árið 2019. Viðar Ingólfsson er annar með 23 stig og er því 15 stigum á eftir Jakobi en mörg stig eru eftir í pottinum þar sem keppt er bæði í tölti og flugskeiði og getur því knapi fengið mest 24 stig út úr kvöldinu, sigri hann báðar greinar. Ennþá eiga því nokkrir knapar raunhæfa möguleika á sigri þó svo Jakob verði að teljast sigurstranglegur.
Lið Hjarðartúns, sem er nýliði í deildinni en skipað reynslumiklum knöpum, stendur efsti í liðakeppni með 299 stig. Sigurliðið frá því í fyrra Hrímnir/Export hestar er í öðru sæti sem stendur með 251,5 stig og Gangmyllan í því þriðja með 236 stig.
Það verður því spennandi að fylgjast með hvernig þetta fer allt saman að lokum og ljóst er að Eiðfaxi mun fylgjast með og flytja fréttir af því sem fram fer.
Staðan í einstaklingskeppni 10 efstu
| Knapi | Stig |
| Jakob Svavar Sigurðsson | 38 |
| Viðar Ingólfsson | 23 |
| Elin Holst | 20 |
| Davíð Jónsson | 20 |
| Konráð Valur Sveinsson | 20 |
| Árni Björn Pálsson | 18 |
| Olil Amble | 18 |
| Teitur Árnason | 17 |
| Jóhann Kristinn Ragnarsson | 14 |
| Helga Una Björnsdóttir | 12.5 |
Staðan í liðakeppni
| Lið | Heildarstig |
| Hjarðartún | 299 |
| Hrímnir / Export hestar | 251.5 |
| Gangmyllan | 236 |
| Hestvit / Árbakki | 230.5 |
| Top Reiter | 220 |
| Eques / Kingsland | 218.5 |
| Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð | 190 |
| Ganghestar / Austurás | 154.5 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH