Spenna og skemmtun á Grunnskólamótum
Í vetur hafa verið haldin tvö fjörug hestaíþróttamót milli grunnskóla á Norðurlandi vestra þar sem nemendur 1.-10. bekkja úr sex grunnskólum keppa sín á milli í hinum ýmsu keppnisgreinum.
Í ár er metár í Grunnskólamótinu í hestaíþróttum því 88 nemendur úr grunnskólunum Húnavallaskóla, Grunnskóla Húnaþings vestra, Varmahlíðarskóla, Árskóla, Grunnskóla austan vatna og Blönduskóla eru skráðir til leiks. Keppt hefur verið í þrautabraut, fegurðarreið, tvígangi, þrígangi, fjórgangi og skeiði þar sem efstu nemendur í hverri keppni hafa hlotið stig fyrir sinn skóla.
Grunnskólamótið er samstarfsverkefni æskulýðsnefnda hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda, Svaða, Neista og Þyts en Kaupfélag Skagfirðinga er stærsti stuðningsaðilli mótaraðarinnar. Reglur hverrar keppni miðar að aldri keppenda. Nemendur í 1.-3. Bekk keppa í fegurðarreið og þrautabraut. Nemendur 4.-7. Bekkjar keppa í tvígangi, þrígangi, tölti og smala en unglingarnir í 8.-10. Bekk þurfa að lúta öllum reglum LH og keppa í tölti, fjórgangi og skeiði. Þann 20. febrúar glímdu grunnskólanemendurnir við þrautabraut í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi. Sunnudaginn 20. mars öttu nemendurnir síðan kappi í fegurðarreið, tvígang, þrígang, fjórgang og skeið í reiðhöllinni Svaðastöðum hjá Sauðárkróki .
Haraldur Smári Haraldsson hjá Æskulýðsnefnd Léttfeta segir mótaröðin sé nú haldin þriðja árið í röð. „Þetta er skemmtilegt leið til að leiða saman börn og unglinga frá þessum rótgrónu hestamannahéröðum. Á mótunum hittast krakkarnir og kynnast, það er alltaf afar létt yfir mótunum. Reyndar getur verið ansi mikill metingur á milli foreldra sem taka mótunum af alvöru. En krakkarnir eru allir frábærir reiðmenn, stundum mæta í braut glæsilegir gæðingar og efnilegir knapar sem sýna þvílíka takta að maður tárast hreinlega við að horfa á þau,“ segir Haraldur Smári.
Varmahlíðarskóli hefur unnið stigakeppni milli skólanna síðastliðinn tvö ár og skaut sér í efsta sæti eftir síðasta móti. En Húnavallaskóli er ekki langt undan og allt getur gerst í lokamótinu sem haldið verður á Hvammstanga þann 3. apríl nk. Þá verður keppt í fegurðarreið, tölti og skeiði. Eftir mót verður slegið upp veglegri uppskeruhátíð fyrir keppendur og aðstandendur í höllinni á Hvammstanga þar sem fagnað verður vel heppnaðri mótaröð.
Eiðfaxi fagnar framtaki æskulýðsnefnda hestamannafélaganna sem standa að mótaröðinni og skorar um leið á fleiri hestamannafélög til að standa að slíkum mótum. Svona er hægt að hvetja unga og efnilega knapa til dáða.
Hér eru úrslit og myndir frá mótinu 20. mars sl. Myndirnar tók Ingibjörg Klara Helgadóttir.
Fegurðarreið
1. Aníta Ýr Atladóttir Demantur f. Syðri-Hofdölum Varmahlíðarskóli 7,5
2. Björg Ingólfsdóttir Hágangur frá Narfastöðum Varmahlíðarskóli 7
3. Stefanía Sigfúsdóttir Lady frá Syðra-Vallholti Árskóli 6,5
4. Freydís Þóra Bergsdóttir Gola frá Ytra-Vallholti Gr.austan vatna 6
5. Jón Hjálmar Ingimarsson Flæsa frá Fjalli Varmahlíðarskóli 5,5
Tvígangur
1. Sigurður Bjarni Aadnegard Prinsessa frá Blönduósi Blönduskóli 6,8
2. Viktoría Eik Elvarsdóttir Máni frá Kvestu Varmahlíðarskóli 6,5
3. Leon Paul Suska Neisti frá Bolungarvík Húnavallaskóli 6
4. Stella Finnbogadóttir Dalablesi frá Nautabúi Árskóli 5,8
5. Hólmar Björn Birgisson Tangó frá Reykjum Gr.austan vatna 5,5
Þrígangur
1. Þórdís Inga Pálsdóttir Kjarval frá Blönduósi Varmahlíðarskóli 7
2. Ásdís Ósk Elvarsdóttir Ópera frá Brautarholti Varmahlíðarskóli 6,7
3. Ingunn Ingólfsdóttir Hágangur f. Narfastöðum Varmahlíðarskóli 6,5
4. Lilja María Suska Þruma frá Steinnesi Húnavallaskóli 6,2
5. Viktor Jóhannes Kristóferss. Flosi frá Litlu-Brekku Gr.Húnaþings vestra 6
Fjórgangur
1. Ragna Vigdís Vésteinsd. Glymur frá Hofsstaðaseli Varmahlíðarskóli 6,2
2. Jón Helgi Sigurgeirsson Töfri frá Keldulandi Varmahlíðarskóli 6,1
3. Haukur Marian Suska Þruma frá Steinnesi Húnavallaskóli 5,6
4. Eydís Anna Kristófersdóttir Sómi frá Böðvarshólum Gr.Húnaþings vestra 5,5
5. Gunnar Freyr Gestsson Flokkur frá Borgarhóli Varmahlíðarskóli 5,4
Skeið
1. Bryndís Rún Baldursdóttir Björk frá Íbishóli Árskóli
2. Hanna Ægisdóttir Blesa frá Hnjúkahlíð Húnavallaskóli
3. Friðrik Andri Atlason Gneisti frá Ysta-Mó Varmahlíðarskóli
4. Sara María Ásgeirsdóttir Jarpblesa frá Djúpadal Varmahlíðarskóli
Staða skólanna eftir tvö mót
1. Varmahlíðarskóli 67
2. Húnavallaskóli 62
3. Árskóli 40
4. Gr. Húnaþings vestra 39
5. Blönduskóli 27
6. Gr. Austan vatna 26
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH