Spennandi keppni á Kronshof
Spennandi keppni var í dag á sterku móti á Kronshof í Þýskalandi. Frauke Schenzel varð efst í 4gangi á Tíggli vom Kronshof með einkunnina 8,50.
Í öðru sæti varð Anne Stine Haugen á Muna frá Kvistum og í þriðja sæti varð Agnar Snorri Stefánsson og Styrkur frá Eystri-Hól.
Hörð keppni var í 5gangi en þar urðu jafnar að stigum í fyrsta sæti Frauke Schenzel með Fannar frá Kvistum (F: Nagli) og Julie Christiansen á Erni frá Efri-Gegnishólum (F: Aron) með einkunnina 7.87. Samantha Leidesdorff varð þriðja á Farsael vom Hrafnsholt (F: Depill).
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH