Spennandi lokamót á fimmtudag – Eyjólfur veðjar á tvo hesta
Fjórða og síðasta mót KEA mótaraðarinnar fer fram í Top Reiter höllinni nk. fimmtudag kl. 19.
Keppt verður í T2 slaktaumatölti og í skeiði. Knapafundur er kl. 18.15. Aðgangseyrir er 500 kr.
Stefán Friðgeirsson leiðir mótaröðina eftir að hann hafnaði í öðru sæti fimmgangskeppninnar fyrir viku síðan á Degi frá Strandarhöfði, aðeins 0,05 stigum frá Viðari Bragasyni og Sísí frá Björgum. Báðir munu þeir mæta með sömu hross til leiks í skeið á fimmtudag. Athygli vekur að Eyjólfur Þorsteinsson, sem situr nú í öðru sæti mótaraðarinnar, 4 stigum frá Stefáni, ætlar að mæta með tvo hesta til leiks í skeiði á fimmtudaginn.
Hér er ráslisti kvöldsins:
Skeið
1. Anna Kristín Friðriksdóttir og Jóhannes Kjarval frá Hala
2. Erlingur Ingvarsson og Blær frá Torfunesi
3. Baldvin Ari Guðlaugsson og Jökull frá Efri-Rauðalæk
4. Þór Jónsteinsson og Drottning frá Kálfsskinni
5. Viðar Bragason og Sísí frá Björgum
6. Eyjólfur Þorsteinsson og Spyrna frá Vindási
7. Ásdís Helga Sigursteinsdóttir og Hvinur frá Litla-Garði
8. Stefán Birgir Stefánsson og Tristan frá Árgerði
9. Sveinbjörn Hjörleifsson og Blævar frá Dalvík
10. Camilla Höj og Skjóni frá Litla-Garði
11. Guðlaugur Magnús Ingason og Stella frá Sólheimum
12. Atli Sigfússon og Gígja frá Litla-Garði
13. Sveinn Ingi Kjartansson og Prati frá Eskifirði
14. Erlingur Ingvarsson og Möttull frá Torfunesi
15. Stefán Friðgeirsson og Dagur frá Strandarhöfði
16. Þórhallur Þorvaldsson og Rán frá Litla-Dal
17. Baldvin Ari Guðlaugsson og Máni frá Djúpárbakka
18. Eyjólfur Þorsteinsson og Vorboði frá Höfða
19. Sveinbjörn Hjörleifsson og Drífa Drottning frá Dalvík
20. Sara Armbru og Húmi frá Reykjavík
21. Þór Jónsteinsson og Glettingur frá Dalsmynni
22. Þorbjörn Hreinn Matthíasson og Hvinur frá Hamrahóli
Slaktaumatölt
1. Þór Jónsteinsson og Kopar frá Hvanneyri
2. Sveinn Ingi Kjartansson og Stígur frá Naustum III
3. Camilla Höj og Skjóni frá Litla-Garði
4. Atli Sigfússon og Krummi frá Egilsá
5. Baldvin Ari Guðlaugsson og Akkur frá Hellulandi
6. Stefán Friðgeirsson og Saumur frá Syðra-Fjalli I
7. Anna Catharina Gros og Orka frá Arnarholti
8. Eyjólfur Þorsteinsson og Ögri frá Baldurshaga
9. Anna Kristín Friðriksdóttir og Eldjárn frá Sandhólaferju
10. Viðar Bragason og Amanda Vala frá Skriðulandi
11. Þorbjörn Hreinn Matthíasson og Röskva frá Höskuldsstöðum
12. Viðar Bragason og Spænir frá Hafrafellstungu 2
13. Sveinn Ingi Kjartansson og Blika frá Naustum III
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH