Spennandi lokamót framundan í KEA mótaröðinni
Síðasta keppni KEA mótaraðarinnar fer fram fimmtudaginn 24. mars nk. en þá verður keppt í slaktaumatölti og skeiði. Skráningar skal senda á [email protected].
„Skráningargjaldið er 2.500 kr. fyrir hvern hest, og það þarf að leggja inná 0302-26-15841 kt: 430269-6749 (a.t.h. þetta er ekki sami reikn. og vanalega er notaður, greiða þarf skráningargjaldið fyrir hádegi á fimmtudag). Skráningu lýkur kl. 21 þriðjudaginn 22. mars, ráslistar verða birtir miðvikudaginn 23. mars. Taka þarf fram nafn knapa og kennitölu og í hvaða grein er verið að skrá í, nafn hests og ISnúmer, án þessara upplýsinga er skráningin ógild. Mótið hefst kl. 19:00 og er knapafundur kl. 18:15,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum mótaraðarinnar.
Það horfir í spennandi lokakeppni enda er mjótt á munum milli keppenda í stigakeppni mótaraðarinnar. Eftir fimmgangskeppni í síðustu viku skaut Stefán Friðgeirsson sér upp fyrir Eyjólf Þorsteinsson. Á hæla þeirra koma Helga Árnadóttir, Pétur Vopni Sigurðsson, Baldvin Ari Guðlaugsson og Viðar Bragason. Allt getur því gerst og verður eflaust barist til síðasta skeiðspretts.
Staðan í mótaröðinni eftir þrjár greinar er eftirfarandi:
Stefán Friðgeirsson 18. Stig.
Eyjólfur Þorsteinsson 14. Stig.
Helga Árnadóttir 12. Stig.
Pétur Vopni Sigurðsson 11. Stig.
Baldvin Ari Guðlaugsson 11. Stig.
Viðar Bragason 11. Stig
Þorbjörn Matthíasson 8. Stig.
Camilla Hoj 8. Stig.
Jón Björnsson 5. Stig.
Vignir Sigurðsson 5. Stig.
Guðmundur K Tryggvason 4. Stig.
Anna K Friðriksdóttir 4 . stig.
Þorvar Þorsteinsson 4. Stig.
Þór Jónsteinsson. 4. Stig.
Þórhallur D Pétursson 1. Stig.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH