Spennandi mót framundan á Kaldármelum

  • 26. júní 2013
  • Fréttir
Spennandi mót framundan á Kaldármelum

Nú styttist óðum í að Fjórðungsmótið á Kaldármelum hefjist.  Stefnir í mjög gott mót enda eru mun fleiri hross skráð til leiks nú en fyrir fjórum árum.  Tæplega 200 hross eru skráð í gæðingakeppni og yngri flokka, um það bil 140 hross í tölt T-1, tölt T-3 fyrir 17 ára og yngri, A- og B- flokk stóðhesta og 100 M fljúgandi skeið.  Þá eiga 73 kynbótahross rétt til þátttöku í mótinu og hefur verið staðfest að rúmlega 50 hross mæta til dóms.  Þá verða sýningar frá 10 ræktunarbúum á laugardeginum.  Er margt góðra og þekktra hrossa á meðal þáttakenda á mótinu þannig að búast má við hörku keppni.

Það eru góð tjaldstæði í fallegu umhverfi á Kaldármelum, og stutt í sundlaugar í Borgarnesi og á hótel Eldborg í Laugargerði.  Á svæðinu verður veitingasala á vegum veitingastaðarins Ship-O-hoj, sölubásar, kvöldvökur, skemmtiatriði og dansleikir bæði föstudags- og laugardagskvöld þannig að allir eiga að geta látið fara vel um sig og átt góða daga á þessum fallega stað.

Dagskrá mótsins er að finna á heimasíðu þess www.fm.lhhestar.is og svo er síða á Facebook.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link