Spennandi töltkeppni framundan
Töltkeppni KS deildar verður haldin í Svaðastaðahöll miðvikudaginn 21. mars.
Hörku keppni framundan miðað við hestakost keppenda. Margreyndir keppnishestar eru á ráslista en Þórarinn Eymundsson mætir með Stjörnutöltsmeistarann Takt frá Varmalæk, efsti maður mótaraðarinnar Ísólfur Líndal Þórisson mætir með Sæssoninn Freyði frá Leysingjastöðum með 9 fyrir tölt sem er að stíga sín fyrstu skref í keppni.
Ráslisti
1. Mette Mannseth Lukka frá Kálfsstöðum
2. Þórarinn Eymundsson Taktur frá Varmalæk
3. Elvar Einarsson Lárus frá Syðra Skörðugili
4. Baldvin Ari Guðlaugsson Senjor frá Syðri Ey
5. Hörður Óli Sæmundarson Albert frá Vatnsleysu
6. Erlingur Ingvarsson Skrugga frá kýrholti
7. Tryggvi Björnsson Stórval frá Lundi
8. Fanney Dögg Indriðad Grettir frá Grafarkoti
9. Sveinn B Friðriksson Synd frá Varmalæk
10. Magnús B Magnússon Óskasteinn frá Íbishóli
11. Ólafur Magnússon Gáski frá Sveinsstöðum
12. Viðar Bragason Björg frá Björgum
13. Ísólfur L Þórisson Freyðir frá Leysingjastöðum
14. Bjarni Jónasson Roði frá Garði
15. Elvar Logi Friðriksson Brúney frá Grafarkoti
16. Sölvi Sigurðarson Óði Blesi frá Lundi
17. Þorsteinn Björnsson Hvinur frá Hvoli
18. Þorbjörn H Matthíasson Von frá Syðra Kolugili
Keppni hefst stundvíslega kl. 20 og aðgangseyrir á mótið er 1.500 kr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH