Spuni faðir flestra vekringa á stórmótum síðustu ára
Þórður Þorgeirsson tekur Spuna til kostanna á Landsmóti árið 2011. Ljósmynd: Henk Peterse
Áfram heldur greinarhöfundur að grúska í gagnagrunnum Worldfeng og Sportfengs um feður keppnishrossa. Hér áður höfðu birst sambærilegar greinar um feður hrossa í íþróttakeppni annars vegar og hinsvegar í gæðingakeppni. Nú beindist áhuginn að feðrum hrossa í skeiðgreinum. Úrtakið sem var notað eru stórmót hér á landi á þessum áratug. Það er; Landsmót 2022 og 2024 og Íslandsmót fullorðinna og ungmenna árin 2021,2022,2023,2024 og 2025.
Keppnisgreinarnar sem lágu til grundvallar eru því 250 metra skeið, 150 metra skeið, 100 metra skeið og gæðingaskeið. Valið á þessum mótum byggir á því að þar keppa bestu skeiðhross landsins og til að komast þangað þarf vissan lágmarks árangur, því keppa þar eingöngu bestu vekringar landsins hverju sinni.
Ekki er um vísindalega grein að ræða og því ekki farið í þá vinnu að skoða fleiri breytur en fjölda afkvæma. Greinarhöfundur hvetur þó alla þá sem vilja skoða þetta nánar að velta þessum hestum fyrir sér í Worldfeng og grúska sér til gagns og gamans. Í því samhengi er t.d. vert að velta fyrir sér aldri stóðhestanna og fjölda afkvæma þeirra á tamningaaldri á þessu árabili.
Unnið var með gögnin á þann hátt að hvert hross kæmi aðeins einu sinni fyrir, óháð því í hversu mörgum greinum eða mótum þau tóku þátt. Heildarfjöldi vekringa á þessum mótum voru 226 hross og reyndust feður þeirra vera 132 mismunandi stóðhestar. Þeir eru því fjölmargir stóðhestarnir sem skilað hafa afburðavekringum en þeir að sjálfsögðu standa þar ekki einir að baki því mæðurnar spila jafn stórt hlutverk í því, en við einbeitum okkur að stóðhestunum. Áhugavert var þó að sjá að tvær hryssur eiga þrjú afkvæmi sem keppt hafa á þessum stórmótum en þær eru Esja Sól frá Litlu-Brekku og Röst frá Torfunesi.
Topplistinn
Gagnasafnið um hross í skeiðgreinum telur færri hross en í íþrótta og gæðingakeppni og því komast á þennan lista þeir stóðhestar sem eiga þrjú eða fleiri hross í skeiðkeppni.
Flest afkvæmi á Spuni frá Vesturkoti alls 14 talsins. Rýmar það við kynbótamat íslenska hestsins þar sem hann stendur með 139 stig fyrir eiginleikann skeið. Annar á listanum er svo Stáli frá Kjarri með 11 afkvæmi og þriðji er Óskasteinn frá Íbishóli með 10 afkvæmi. Þá er vert að minnast á það og athygli vekur að Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum á fjögur afkvæmi á listanum, en hann er töluvert yngstur þessarra stóðhesta fæddur árið 2013. Álfaklettur er náskyldur þeim Spuna og Stála á þann hátt að Stáli er faðir Álfakletts og Spuni er undan bróður hans Álfasteini.
| Nafn | Fjöldi |
| Spuni frá Vesturkoti | 14 |
| Stáli frá Kjarri | 11 |
| Óskasteinn frá íbishóli | 10 |
| Ómur frá Kvistum | 5 |
| Trymbill frá Stóra-Ási | 5 |
| Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum | 4 |
| Arður frá Brautarholti | 4 |
| Aron frá Strandarhöfði | 4 |
| Besti frá Upphafi | 4 |
| Kiljan frá Steinnesi | 4 |
| Sjóður frá Kirkjubæ | 4 |
| Þóroddur frá Þóroddsstöðum | 4 |
| Aðall frá Nýjabæ | 3 |
| Adam frá Ásmundarstöðum | 3 |
| Arion frá Eystra-Fróðholti | 3 |
| Hrannar frá Flugumýri | 3 |
| Ölnir frá Akranesi | 3 |
| Örvar frá Gljúfri | 3 |
| Rammi frá Búlandi | 3 |
| Smári frá Skagaströnd | 3 |
| Vilmundur frá Feti | 3 |
Rétt er að taka fram að samantekt þessi er til gamans gerð og birt með fyrirvara um mannleg mistök við vinnslu og hreinsun gagnanna.
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Gífurlega spennandi lokakvöld Meistaradeildar Líflands
Lið Fossvéla og Erla Guðný sigurvegarar Samskipadeildar
Lokamótið í Meistaradeild Líflands og æskunnar
Fákar og fjör á Akureyri