Stærsta innanhúss mót ársins

  • 18. mars 2019
  • Fréttir
80 á biðlista til að keppa á Icehorse Festival í Herning 4-7 apríl.

Í einni stærstu höll sem notuð hefur verið undir Íslandshestaviðburð verður í annað sinn haldið Worldrank mótið Icehorse festival í byrjun apríl. Til þátttöku hafa skráð sig margir af bestu knöpum Evrópu og því stefnir í spennandi keppni sterkra hesta og knapa.

Meðal þeirra eru ríkjandi heimsmeistarar, norðurlandameistarar og landsmeistarar sinna landa en svo mikill var áhuginn á þátttöku að skráningar fylltust á einungis nokkrum mínútum eftir að opnað var fyrir skráningar. „Það eru um 80 á biðlista hjá okkur, en áhuginn á skráningum var mun meiri en í fyrra og kom okkur alveg í opna skjöldu“ sagði Rassmus Möller einn aðstandanda keppninnar og bætti við að eftir frábærlega vel heppnað mót í fyrra sé áhugi keppanda og áhorfenda mun meiri en í fyrra. Rassmus vonar að þessi áhugi verði til þess að þessi keppni festi sig í sessi.

Á þessu móti er keppt í öllum helstu hringvallargreinum en um er að ræða löglegt íþróttamót þar sem keppt er eftir World ranking reglum FIPO leiðarans og því um fullgilt mót að ræða líkt og utanhússmót á löglegum hringvöllum. Einnig er sérstakur unghrossa flokkur fyrir keppnishross sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni en að auki er stóðhestakeppni sem vakti mikla lukku í fyrra. Sú keppni fer fram á laugardagskvöldinu þar sem margir af betri stóðhestum Evrópu mæta en í fyrra voru það tveir fyrr um heimsmeistarar sem börðust þar um sigurinn.

Stórt markaðstorg er á svæðinu en til gamans má geta að öll sölupláss eru löngu uppseld að sögn aðstandanda. Það verða rúmlega fimmtíu aðilar sem kynna munu þarna vörur sínar og þjónustu á öllum sviðum hestamennskunnar.

Að auki verða fyrirlestrar og fræðsla á vegum danska íslandshestafélagsins en skipuleggjendur búast við um 10.000 gestum á viðburðinn nú í ár. „Miðasala fer frábærlega af stað og vonum við að gestir frá Íslandi láti sjá sig enda klárast Meistaradeildin á fimmtudeginum og þa´um að gera að skella sér á föstudeginum til Herning og bera bestu hross Íslands saman við bestu hross Evrópu“ sagði Rassmus að lokum í samtali við Eiðfaxa.

Nánari upplýsingar má finna á síðunni: www.icehorsefestival.com

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link