Starfsemi íþróttadómara svipuð milli ára
Íþróttadómaranefnd FEIF hefur sent frá sér skýrslu um starfsemi alþjóða íþróttadómara samtakana.
Í henni kemur fram að starfsemi íþróttadómara FEIF árið 2012 var svipuð og árið áður. Að meðaltali dæmdi FEIF dómari á 4,8 WR atburðum árið 2012 og meðalfjöldi keppnisdaga var 14,7.
Meðalfjöldi FEIF íþróttadómara á WR atburðum var 4,2 – sem þýðir að fleirum en tveimur var boðið til að dæma á 88% af öllum WR viðburðum ársins. Að meðaltali dæmdu alþjóðlegir dómarar á 2,1 WR atburðum utan búsetulands sem er svipað og fyrr ár en danskir, sænskir og þýskir dómarar störfuðu meira erlendis en árið áður.
Þá kemur fram að íslenskir dómarar störfuðu talsvert minna á erlendri grundu í samanburði við fyrra ár en tóku hins vegar þátt í mun fleiri WR viðburðum hérlendis.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH