Stefna að því að halda HM í Herning

  • 29. nóvember 2020
  • Fréttir

Ekki er vist að áhorfendur geti verið á mótinu næsta sumar mynd: Eiðfaxi

Gunnar Sturluson forseti FEIF hélt ræðu á landsþingi LH þar sem hann nefndi að stefnt væri að því að halda HM í Herning sem fara á fram næsta sumar. Mótið verður haldið hvort sem áhorfendur verða leyfðir eða ekki og verða áhorfendur þá að fylgjast með í gegnum beinar útsendingar.

Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir hestamenn en Gunnar sagði jafnframt í ræðu sinni að til þess að þetta yrði verða þó að minnsta kosti 500 manns að mega koma saman svo mögulegt sé að halda mótið hvað keppendur, dómara og annað starfsfólk varðar.

Frábærar fréttir frá FEIF og nú er að vona að af þessu verði og Heimsmeistaramótið í Herning fari fram á næsta ári með tilheyrandi hreyfingu á hestamennskunni í heild sinni.

Skjáskot blaðamanns Eiðfaxa af Gunnari Sturlusyni forseta Feif í ræðustóli á rafrænu þingi LH

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link