Stóðhestaveislan Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!

  • 28. mars 2026
  • Fréttir

Frá Stóðhestaveislu. Ljósmynd: Henk & Patty

Söfnun til handa Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna

Stóðhestaveisla Coca Cola og Eiðfaxa hefst klukkan 19:00 í HorseDay höllinni að Ingólfshvoli laugardaginn 28. mars. Höllinn opnar klukkan 16:00 og verður nægt framboð af mat og drykk fyrir veislugesti.

Gústaf Ásgeir Hinriksson er sýningastjóri kvöldsins og í samtali við Eiðfaxa sagði hann að áhorfendur megi búast við frábæru kvöldi. „Frábærir stóðhestar munu koma fram bæði í sýningu einstaklinga og með afkvæmahópum. Þetta verður því með hefðbundnu sniði í bland við óvænt og þaulæft skemmtiatriði.“

Miðaverð er 6500 krónur og hverjum miða fylgir ávísun sem janfgildir Stóðhestabókinni sem kemur út um miðjan apríl og geta þá miðahafar sótt bókina í verslanir gegn framvísun ávísunar.

Líkt og venja er á þessu kvöldi tökum við hestamenn okkur saman og söfnum fé til handa góðu málefni. Í þetta sinn er það Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Seldir verða happdrættismiðar á staðnum með frábærum vinningum á borð við gjafabréf í verslanir, hótelgistingar og folatolla. Þá verður folatollur undir stórglæsilegan stóðhest boðinn upp líkt og allir þekkja. Við hvetjum alla veislugesti til þess að taka þátt í söfnuninni og með því að smella hér má kynna sér nánar starfsemi Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.

Stóðhestaveislan verður sýnd í beinni útsendingu fyrir áskrifendur okkar á EiðfaxaTV.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link