Stefnir í spennandi keppni
Eftir vel heppnað fyrsta mót KS-Deildarinnar er nú komið að öðru mótinu sem er 5-gangur.
Þegar horft er á ráslistann sést að það stefnir í spennandi keppni á miðvikudagskvöldið.
Af 18 hrossum skráðum eru 12 hross sem hlotið hafa 1.verðlaun í kynbótadóm, þar af 8 stóðhestar.
Að auki eru skráð hross sem náð hafa góðum árangri á íþróttavellinum.
Sést hefur til liða á æfingum og strax hefur myndast spenna í liðakeppninni.
Það er ljóst að það verður gaman í Svaðastaðahöllinni næsta miðvikudagskvöld, 25 febrúar.
Mótið hefst kl 20:00
- Agnar Þór Magnússon Efri-Rauðalækur/Lífland – Vissa frá Lambanesi
- Fredrica Fagerlund TopReiter – Snær frá Keldudal
- Barbara Wenzl Draupnir/Þúfur – Seiður frá Hörgslandi
- Jóhann B. Magnússon Íbess-Gæðingur – Sjöund frá Bessastöðum
- Tryggvi Björnsson Hofstorfan/66°norður – Blær frá Miðsitju
- Valdimar Bergstað Hrímnir – Krapi frá Selfossi
- Guðmundur Tryggvason Efri-Rauðalækur/Lífland – Díva frá Steinnesi
- Magnús Bragi Magnússon Íbess-Gæðingur – Álfadís frá Svalbarðseyri
- Gísli Gíslason Draupnir/Þúfur – Karl frá Torfunesi
- Hallfríður Óladóttir TopReiter – Kolgerður frá Vestri-Leirárgörðum
- Bjarni Jónasson Hofstorfan/66°norður – Dynur frá Dalsmynni
- Þórarinn Eymundsson Hrímnir – Þeyr frá Prestsbæ
- Mette Mannseth Draupnir/Þúfur – Hnokki frá Þúfum
- Líney María Hjálmarsdóttir Hrímnir – Kunningi frá Varmalæk
- Hanna Rún Ingibergsdóttir Íbess-Gæðingur – Hlíf frá Skák
- Elvar Einarsson Hofstorfan/66°norður – Gáta frá Ytra-Vallholti
- Teitur Árnason TopReiter – Óskahringur frá Miðási
- Viðar Bragason Efri-Rauðalækur/Lífland – Sísí frá Björgum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH