Stemning á fyrsta móti Léttis

  • 15. janúar 2013
  • Fréttir
Stemning á fyrsta móti Léttis

Fyrsta mót ársins hjá hestamannafélaginu Létti á Akureyri fór fram í Top Reiter höllinni sl. föstudag.

Skemmtileg stemning myndaðist á Nýárstölti félagsins þar sem keppendur komu fram með glæsilegan hestakost. Keppt var í tveimur styrkleikaflokkum og sigraði Þóra Höskuldsdóttir styrkleikaflokk B á Steinari frá Sámsstöðum á meðan Þorbjörn Hreinn Matthíasson sigraði styrkleikaflokk A á fallegri hryssu, Heklu frá Hólshúsum. Þorbjörn Hreinn er skráður til leiks í KB-mótaröðina og verður spennandi að fylgjast með honum þar. Annar varð Baldvin Ari Guðlaugsson á Senjor frá Syðri Ey en Baldvin var á nýliðnu ári kjörin knapi ársins hjá Létti og var hann heiðraður sérstaklega á mótinu.

Úrslit Nýárstölts Léttis

B styrkleikaflokkur

  1. Þóra Höskuldsdóttir – Steinar fra Sámsstöðum         6,28
  2. Katrín Birna Barkardóttir – Vaka frá Hólum                 6,17
  3. Guðmundur Hjálmarsson Einir frá Ytri Bægisá        6,00
  4. Ágústa Baldvinsdóttir Orka frá Efri Rauðalæk        5,61
  5. Björn Guðjónsson Keðja frá Húsavík                        4,94

A styrkleikaflokkur

  1. Þorbjörn Hr. Matthíasson – Hekla frá Hólshúsum                6,94
  2. Baldvin Ari Guðlaugsson – Senjor frá Syðri Ey                6,72
  3. Guðmundur Tryggvason – Rósalín frá Efri Rauðalæk        6,61
  4. Viðar Bragason – Binný frá Björgum                                6,39
  5. Úlfhildur Sigurðardóttir – Sveifla frá Hóli                        6,39

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link