Stemningin í tölt úrslitum á HM2013 var engu lík

  • 22. október 2020
  • Fréttir

Jóhann R. Skúlason og Hnokki í A-úrslitum á HM2013 mynd: Eiðfaxi

Nú þegar haustið hefur tekið völdin hér á landi og langt er síðan hestaáhugamenn fengu að njóta þess að horfa á spennandi keppni á hestum er ekki úr vegi að rifja upp ógleymanleg augnablik.

Hér fyrir neðan er myndband frá tölt úrslitum á Heimsmeistaramótinu í Berlín 2013 og það má með sanni segja að stemningin hafi verið engu lík. Mörg þúsund manns á áhorfendabekkjunum sem tóku virkan þátt í því sem fram fór.

Ísland átti tvo fulltrúa í þessum úrslitum þá Jóhann R. Skúlason á Hnokka frá Fellskoti og Hinrik Bragason á Smyrli frá Hrísum.

Loka niðurstaða úrslitanna var svona

1.Jóhann R. Skúlason & Hnokki frá Fellskoti 9,61
2.Karly Zingsheim & Dagur 8,33
3.Anne Stine Haugen & Muni frá Kvistum 8,28
4.Hinrik Bragason & Smyrill frá Hrísum 8,22
5.Nils Christian Larsen & Moli frá Skriðu 8,17
6.Isabelle Felsum & Viktor frá Diisa 8,11

 

Er ekki öllum farið að hlakka til HM í Herning 2021?

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link