Sterkt lið Þjóðverja

  • 13. júlí 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Þýska landsliðið fullskipað.

Þýska meistaramótið fór fram um helgina en var það einnig úrtaka fyrir landslið Þýskalands. Þjóðverjar hafa alltaf verið sterkir á Heimsmeistaramótum en síðast liðið mót hirtu þeir fjögur gull, fjórgang fullorðna og ungmenna, slaktaumatölt ungmenna og samanlagað sigurvegara í fimmgangsgreinum.

Frauke Schenzel ríkjandi heimsmeistari í fjórgangi er auðvitað í liðinu og hefur hún frjálst val um hvaða hross hún kemur með. Líklegt er að hún velji Óskadís vom Habichtswald en þær hafa gert það vel í keppni undanfarið ár og þá sérstaklega í slaktaumatölti. 

Charlotte Passau og Johanna Beuk er einnig ríkjandi heimsmeistarar í ungmennaflokki. Charlotte sigraði T2 á Uni vom Kronshof og Johanna fjórganginn á Merkur von Birkenlund. Bæði þessi pör eru í landsliðinu en hér fyrir neðan er hægt að sjá liðsskipan.

Þýska Landsliðið
Fullorðnir

– Annabell Steuer & Geisa frá Reykjavík
– Frauke Schenzel (heimsmeistari)
– Helmut Bramesfeld & Blöndal vom Störtal
– Johanna Tryggvason & Fönix frá Syðra-Holti
– Jolly Schrenk & Glæsir von Gut Wertheim
– Karly Zingsheim & Naddur vom Schluensee
– Lisa Schürger & Bassi frá Efri-Fitjum
– Nadja Wohllaib & Eldur vom Schwäbischen Wald

Varaknapar
– Dörte Mitgau & Ísbjörn vom Schloss Nienover
– Lisa Schürger (freie Pferdewahl)

Ungmenni
– Charlotte Passau & Uni vom Kronshof
– Johanna Beuk & Merkur von Birkenlund
– Lilja Thordarson & Erla vom Steinadlerhof
– Lucie Maxheimer & Stjörn vom Eifelhaus
– Marvin Heinze & Myrkvi vom Quillerhof
– Shirin Geier & Prins from Creekside Farm
– Svenja Kohl & Svartur von Faxaból

Varaknapi
– Olivia Ritschel & Eyðir von der Krähenweide

Kynbótahross

Stóðhestar 5v. DE2010163007 Óðinn v Habichtswald – Frauke Schenzel – 8,29-8,35-8,33
Stóðhestar 6v. DE2009134130 Gustur vom Kronshof – Frauke Schenzel – 8,52 – 8,28 – 8,38
Stóðhestar 7v.+ DE2007184952 Spóliant vom Lipperthof – Daníel Jónsson – 8,37 – 8,83 – 8,65

Hryssur 5v. DE2010234992 Hrönn v Kronshof – Frauke Schenzel – 8,22-8,54-8,41
Hryssur 6v. DE2009234084 Gletting v Kronshof – Frauke Schenzel – 8,23-8,52-8,40
Hryssur 7v.+ DE2006234018 Stjörnudís vH Osterkamp – Þ Þorgeirsson – 8,55-8,55-8,55

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link