Íslandsmót Stígur Íslandsmeistari í járningum

  • 16. október 2022
  • Fréttir

Stígur Sæland er Íslandsmeistari í járningum árið 2022 Mynd: Mustad Hoofcare

Íslandsmeistaramótið í járningum fór fram í gær.

Í gær fór fram járningamannadagurinn, eða öllu heldur var þetta sannkölluð járningarhelgi á Völlum í Ölfusi (Eldhestum). Viðburðurinn var opinn öllum sem vildu en járningamenn, dýralæknar og kynbótadómara voru hvattir til að mæta.

Á föstudaginn voru fyrirlestrar og sýnikennsla í járningum með Werkmann Black búnaðinum. Á laugardaginn voru fyrirlestar og síðan járningamannakeppnin, aðalfundur félagsins og dagurinn endað á sameiginlegum kvöldverði. Í dag, sunnudag, var fyrirlestur með Aksel Vibe og síðan járningar. Aksel Vibe er mikill Íslandsvinur og flestum járningamönnum kunnugur en hann var aðal fyrirlesarinn um helgina. Einnig voru þær Susanne Braun, dýralæknir, og Elisabeth Trost, kynbótadómari, með sinhvorn fyrirlesturinn í sínu fagi.

Eins og áðan kom fram að eftir hádegi á laugardeginum var hin árlega járningamannakeppni og Íslandsmeistarinn í járningum krýndur. Að þessu sinni fór það svo að Stígur Sæland er Íslandsmeistari í járningum 2022. Í öðru sæti endaði Hreinn Gunnar Guðmundsson, þriðji var Arnór Óli Simonsen, fjórði Ísólfur Ólafsson og fimmta Caroline Aldén.

Þátttakendur í Íslandsmeistaramóti járningarmanna ásamt verðlaunagripum. Mynd: Mustad Hoofcare

Einnig var kosin ný stjórn járningamannafélagsins en nýjir í stjórn eru þeir Sigurgeir Jóhannsson, nýr formaður, og Hreinn Gunnar Guðmundsson, nýr gjaldkeri.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link